Problem C
Elo
Languages
en
is
Spilarar í League of Legends mega ekki spila á móti hverjum sem er, þeir geta aðeins spilað á móti spilara sem eru með um það bil sama Elo. Arnar hefur því búið til lista af $n$ spilurum, þar sem Arnar má spila á móti $i$-ta spilaranum bara ef Eloið hans Arnars er á bilinu $[L_i, R_i]$. Í hvert skipti sem Arnar spilar á móti spilara $i$ mun Eloið hans hækka um $a_i$, enda veit hann að hann getur unnið alla þessa spilara.
Arnar má spila á móti sama spilara eins oft og hann vill svo lengi sem Eloið hans Arnars sé á bilinu $[L_i,R_i]$.
Gefnar upplýsingar um alla spilara, hvað er hæsta mögulega Elo sem Arnar getur náð?
Inntak
Fyrsta línan inniheldur tvær heiltölur $1 \le n \le 1\, 000$, fjöldi spilara, og $1 \le x \le 5\, 000$, Eloið hans Arnars í upphafi. Næstu $n$ línur innihalda þrjár heiltölur $1 \le L_i \le R_i \le 5\, 000$, $1 \le a_i \le 500$.
Úttak
Skrifaðu út eina heiltölu, hæsta Elo sem Arnar getur náð.
Stigagjöf
Hópur |
Stig |
Takmarkanir |
1 |
50 |
$a_i$ er sama fyrir öll $i$ |
2 |
50 |
Engar frekari takmarkanir |
Sample Input 1 | Sample Output 1 |
---|---|
3 10 10 15 3 10 13 2 10 11 1 |
18 |
Sample Input 2 | Sample Output 2 |
---|---|
4 10 10 11 5 15 16 5 20 21 30 49 49 100 |
50 |