Hide

Problem B
XORsistinn 2

Languages en is

Presturinn Gunnar fékk dularfull skilaboð í pósti í gær þar sem stóð að eitt af sóknarbörnum hans væri mögulega andsetið. Að auki þá var búið að skrifa niður tvær tölur á bakhliðinni, $a$ og $b$ auk skilaboða ,,Þú ert okkar eina von XORsist!". Gunnar var nefnilega líka særingamaður og hefur mikla reynslu af því að bæla í burtu púka og djöfla.

Hann hefur nú fundið út að tölurnar á bakhliðinni eru til að hjálpa honum að komast að því hver sé andsetinn. Hann ákvað að skrifa niður nöfnin á öllum í sókninni sinni og endaði með nöfn númeruð frá $1$ upp í $N$. Hann fattaði að ef hann myndi taka XOR af öllum tölum frá $a$ upp í $b$ myndi það gefa honum upplýsingar um hver væri andsetinn; ef talan er $0$ þá er enginn andsetinn, ef hún er á bilinu $1$ og upp í $N$ þá er það manneskjan á listanum hans sem passar við þá tölu. Ef hún er hinsvegar stærri en $N$ þá er það Gunnar sjálfur sem er andsetinn og þá erum við öll í vanda!

Útskýring á XOR

XOR, venjulega táknuð með $~ \hat{}~ $ í forritunarmálum, er aðgerð sem tekur tvær tölur og skilar nýrri tölu. Aðgerðin er framkvæmd á tölurnar tvær á tvíundarformi (e. binary), bita fyrir bita. Eftirfarandi tafla sýnir hvernig nýr biti er reiknaður út frá samsvarandi bitum í tölunum tveimur.

A

B

A XOR B

1

1

0

1

0

1

0

1

1

0

0

0

Tökum dæmi. Talan $1337$ í binary er 10100111001 og talan $1993$ í binary er 11111001001.

1337

1

0

1

0

0

1

1

1

0

0

1

1993

1

1

1

1

1

0

0

1

0

0

1

1337 XOR 1993

0

1

0

1

1

1

1

0

0

0

0

Útkoman er 01011110000 sem er talan $752$.

Inntak

Fyrsta lína inniheldur heiltölu $N$, hversu mörg sóknarbörn eru í sókninni hans Gunnars. Næsta lína inniheldur tvær heiltölur, $a$ og $b$, $1 \leq a \leq b \leq N$.

Úttak

Prentið út númerið á sóknarbarninu sem er andsetið, Enginn ef talan er $0$ og Gunnar ef talan er stærri en $N$.

Útskýring á sýnidæmum

Í fyrsta sýnidæminu eru $N = 3$ börn, og $a = 1$, $b = 3$. Ef við reiknum XOR af öllum tölum frá $1$ upp í $3$, þá fáum við $(1\textrm{ XOR }2)\textrm{ XOR }3 = 0$. Það er því enginn andsetinn, og svarið er Enginn.

Í öðru sýndæminu eru $N = 7$ börn, og $a = 1$, $b = 4$. Ef við reiknum XOR af öllum tölum frá $1$ upp í $4$, þá er útkoman $4$. Barn númer $4$ er því andsetið, og svarið er 4.

Í þriðja sýndæminu eru $N = 6$ börn, og $a = 3$, $b = 4$. Ef við reiknum XOR af öllum tölum frá $3$ upp í $4$, þá er útkoman $7$. Það er stærra en $N$, svo Gunnar er andsetinn. Svarið er því Gunnar.

Stigagjöf

Lausnin mun verða prófuð á miserfiðum inntaksgögnum, og er gögnunum skipt í hópa eins og sýnt er í töflunni að neðan. Lausnin mun svo fá stig eftir því hvaða hópar eru leystir.

Hópur

Stig

Inntaksstærð

Önnur skilyrði

1

33

$ 1 \le N \le 1000$

 

2

33

$ 1 \le N \le 10^{18}$

$a = 1$

3

34

$ 1 \le N \le 10^{18}$

 
Sample Input 1 Sample Output 1
5
1 3
Enginn
Sample Input 2 Sample Output 2
7
1 4
4
Sample Input 3 Sample Output 3
6
3 4
Gunnar