Problem K
Pönnukökur
                                                                Languages
                        
                            
                                                                    en
                                                                    is
                                                            
                        
                                                                
  Signý er að baka pönnukökur. Pönnukökurnar hafa tvær hliðar, hlið $0$ og hlið $1$, og liggja þær í röð. Því er hægt að tákna hvaða hlið snýr upp með tvíundarkerfinu. Upprunalega snýr hlið $0$ upp. Stundum þegar hún bakar pönnukökurnar þá snýr hún þeim. Ef hún snýr pönnuköku sem snýr hlið $0$ upp þá eftir snúninginn mun hlið $1$ snúa upp og öfugt. Signý er pínu sérstök og hún vil vita hversu margar pönnukökur snúa hlið $1$ upp á sérstöku bili. Þú átt að fylgjast með snúningum Signýjar og svara spurningum hennar.
Inntak
Fyrsta línan inniheldur tvær heiltölur $n$ og $q$, fjölda pönnukaka og fjölda aðgerða. Næst koma $q$ línur þar sem hver lína lýsir einni aðgerð. Það eru fjórar tegundir af aðgerðum, fyrsta heiltalan í hverri línu segir af hvaða tegund aðgerðin er.
- 
        Signý snýr pönnuköku $i$. Inntakið er á forminu 1 i, þar sem $1 \leq i \leq n$. 
- 
        Signý snýr öllum pönnukökunum. Inntakið er á forminu 2. 
- 
        Signý spyr hversu margar pönnukökur snúa hlið $1$ upp. Inntakið er á forminu 3. 
- 
        Signý spyr hversu margar pönnukökur snúa hlið $1$ upp frá pönnuköku $l$ að pönnuköku $r$. Inntakið er á forminu 4 l r. 
Úttak
Fyrir hverja spurningu skaltu skrifa út eina línu með einni heiltölu, svarið við spurningunni. Svör skulu koma í sömu röð og spurningarnar sem þau svara.
Stigagjöf
| Hópur | Stig | Inntaks takmarkanir | 
| 1 | 20 | $1 \leq n,q \leq 2 \cdot 10^5$ bara aðgerðir af tegund 1 og 3 | 
| 2 | 14 | $1 \leq n,q \leq 2 \cdot 10^5$ bara aðgerðir af tegund 1,2 og 3 | 
| 3 | 30 | $1 \leq n,q \leq 1000$ allar tegundir af aðgerðum | 
| 4 | 36 | $1 \leq n,q \leq 2 \cdot 10^5$ allar tegundir af aðgerðum | 
| Sample Input 1 | Sample Output 1 | 
|---|---|
| 3 7 1 1 3 1 2 3 1 3 1 2 3 | 1 2 2 | 
| Sample Input 2 | Sample Output 2 | 
|---|---|
| 2 5 3 1 1 2 3 3 | 0 1 1 | 
| Sample Input 3 | Sample Output 3 | 
|---|---|
| 9 6 3 2 2 1 9 4 2 9 3 | 0 1 1 | 
