Problem G
Bitaflipp
Turing vél samanstendur af tveimur meginhlutum. Fyrst er band sem skipt hefur verið í litlar einingar, og eru þær númeraðar í hækkandi röð frá $1$. Á hverri einingu er skrifað annaðhvort tölustafurinn $0$ eða tölustafurinn $1$. Ofan á þessu bandi er svo haus. Þessi haus er yfir einni einingu í einu, en hann getur fært sig fram og til baka á milli eininganna. Hausinn getur einnig lesið af og skrifað á eininguna sem hann er yfir. Þessa vél er svo hægt að forrita til að leysa sömu verkefni og nútíma tölvur geta leyst.
Gunnar litli er búinn að vera að æfa sig í að forrita svona Turing vél. Nýjasta forritið hans byrjar með hausinn á einingu númer $i$. Hausinn skoðar töluna sem skrifuð er í núverandi einingu. Ef hún er $1$, þá skrifar hausinn $0$ yfir töluna, en ef hún er $0$, þá skrifar hausinn $1$ yfir töluna. Svo fer hausinn á eininguna til hægri. Þetta er endurtekið alveg þar til hausinn er búinn með einingu $j$.
Sem dæmi, segjum að Gunnar litli keyri forritið með $i=5$ og $j=7$ á bandinu sem sýnt er í myndinn að ofan. Hausinn byrjar þá á einingu $5$. Hausinn breytir þar $0$ í $1$, og fer á reit $6$. Þar breytir hausinn $0$ í $1$, og fer á reit $7$. Þar breytir hausinn $1$ í $0$. Núna er hausinn búinn með reit $j=7$ og stoppar. Á bandinu mun því standa 1 0 0 1 1 1 0 þegar vélin er búin.
Gunnar litli hefur mjög gaman af þessu. Hann er búinn að vera að keyra forritið sitt með mismunandi böndum og mismunandi gildum á $i$ og $j$, sem uppfylla þó $1 \leq i \leq j \leq N$ þar sem $N$ er fjöldi eininga í bandinu. Núna er hann með band sem honum finnst mjög áhugavert, og hann veltir fyrir sér hver er hæsti mögulegi fjöldi eininga sem innihalda töluna $1$ eftir að hann keyrir forritið á þetta band, ef hann velur $i$ og $j$ á besta mögulegan hátt.
Inntak
Í fyrstu línu er ein heiltala $N$ sem táknar fjölda eininga í bandinu. Þar á eftir fylgir lína með $N$ tölum, sem eru annaðhvort $0$ eða $1$, sem táknar upphaflega innihald eininganna í röð frá $1$ til $N$.
Úttak
Úttak á að innihalda eina línu með heiltölu sem táknar hæsta mögulega fjölda eininga sem innihalda töluna $1$ eftir að forritið er keyrt, ef $i$ og $j$ eru valin á besta mögulegan hátt.
Útskýring á sýnidæmum
Bandið í fyrsta sýnidæminu er sýnt í myndinni að ofan. Það inniheldur $7$ einingar. Í þessu sýnidæmi er hæsti fjöldi eininga með tölunni $1$ hægt að fá með því að keyra forritið með $i=2$ og $j=6$, og eru þá $6$ einingar með töluna $1$.
Í seinna sýnidæminu eru þegar allar einingarnar með töluna $1$. En Gunnar litli þarf að keyra forritið nákvæmlega einu sinni. Ef hann keyrir forritið með $i=1$ og $j=1$ þá eru $2$ einingar eftir með töluna $1$, og er það hæsti fjöldinn sem hægt er að enda með.
Stigagjöf
Lausnin mun verða prófuð á miserfiðum inntaksgögnum, og er gögnunum skipt í hópa eins og sýnt er í töflunni að neðan. Lausnin mun svo fá stig eftir því hvaða hópar eru leystir.
Hópur |
Stig |
Inntaksstærð |
1 |
25 |
$ 1 \leq N \leq 100$ |
2 |
25 |
$ 1 \leq N \leq 1\, 000$ |
3 |
50 |
$ 1 \leq N \leq 10^5$ |
Sample Input 1 | Sample Output 1 |
---|---|
7 1 0 0 1 0 0 1 |
6 |
Sample Input 2 | Sample Output 2 |
---|---|
3 1 1 1 |
2 |